SA.96 Alvi 1951 Sydisland

Skift til: navigering, søgning

25. oktober 1951 Alvi[redigér]

Esbjerg-fiskekutteren E.377 Carl solgtes 1946 til Sandur på Færøerne, hvor den omdøbtes Alvi.

Alvi var sammen med 2 andre fiskekuttere fra Færøerne på fiskeri syd for Island, da det 25. november 1951 blev uvejr med orkanagtig østlig storm. Den var ca. 40 km sydvest for Portland (?) i radiokontakt med TN.171 Sonja Egholm, men alle forsøg på at genetablere forbindelse samme dag efter kl. 16 var forgæves.

Da de 2 andre færøske fiskefartøjer kom i havn på Vestmannaeyjar, alarmerede den ene skipper, som var bror til den .

Den 28., 29., og 30. oktober eftersøgtes kutteren fra flyvemaskine i godt vejr, men eftersøgningen var resultatløs.

Der var 12. februar 1952 søforklaring og søforhør i Thorshavn, hvor det antoges, at kutteren pga. vejrforholdene var forlist og den 5 mand besætning omkommet.

Óttast um færeyskan bát í ofviðri undan Suðurlandi
[redigér]

Var á leið hingað frá Færeyjum ásamt tveimur öðrum, sem náðu landi, brotnir.

Í gærkvöldi auglýsti Slysavarnafélagið eftir færeyskum bát, sem óttast er um. Týndist hann úr samfylgd tveggja annara færeyskra fiskibáta í aftaka óveðri, er þeir hrepptu suður af Portlandi á leiðinni til Íslands.

Báturinn, sem óttast er um, er 40 lestir að stærð og heitir Alvi S.N. 96 og er frá Sand í Færeyjum. Báturina, sem hefir 5-6 manna áhöfn mun hafa verið á leiðinni hingað til lands til drag nótaveiða ásamt tveimur öðrum bátum af sömu stærð, sem urðu honum samferða að heiman frá Færeyjum og alla leið, þangað til þeir misstu skyndilega samband við hann í ofviðrinu.

Áföll og brotsjóir suður af Íslandi.

Þegar bátarnir voru komnir upp undir Ísland, eða innan við 100 sjómílur undan Portlandi, hrepptu þeir aftaka veður. Varð það verst á fimmtudaginn og það var þá, er skipverjar á hinum bátunum heyrðu síðast til Alvi. Munu þeir þá hafa verið um 60-70 mílur undan Íslandi.

Bátarnir tveir, sem komu til Vestmannaeyja í gær, kom ust við illan leik gegnum óveðrið. Urðu þeir fyrir þungum áföllum og brotsjóum, er brutu margt ofan þilja, og eru þeir talsvert brotnir eftir áföllin. Skipstjórin á öðrum þessara báta er bróðir skipstjórans á bátnum, sem sakn að er, og var það hann, sem sneri sér til Slysavarnafélags ins og bað um aðstoð, strax og hann kom skip sínu til Vestmannaeyja í gærdag.

Það er ljóst, að Alvi hefir orðið fyrir áfalli og eitthvað er að hjá bátnum. Vona menn í lengstu lög, að hann sé ofan sjávar. Öll skip, sem stödd kunna að vera á þessum slóðum eru því beðin að veita bátnum athygli og veita honum hjálp, ef þau verða hans vör og hann þarf á hjálp að halda.

Mikil leit en árangurslaus að færeyska bátnum
[redigér]

Ekkert hefir frétzt af færeyska bátnum Alvi, sem týndist í ofviðri undan Suðurströnd landsins í síðustu viku.

Flugvélar og skip hafa leitað að bátnum fyrir tilmæli Slysavarnafélag Íslands. Björgunarflugvélin af Keflavíkurflugvelli leitaði að bátnum í 10 klukkustundir í gær, en án árangurs. Einnig leitaði flugvélin og skip, sem stöd voru á þessum slöðum á sunnudaginn.

Er óttast að báturinn hafi farizt.